Hoppa yfir valmynd

15 íslensk sprotafyrirtæki tóku þátt á TechBBQ í Kaupmannahöfn

Íslandsstofa sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn stóðu fyrir þátttöku sendinefndar um 30 Íslendinga og 15 efnilegra sprotafyrirtækja á TechBBQ, einni stærstu sprota- og fjárfestaráðstefnu í Norður-Evrópu, sem haldin var í Kaupmannahöfn dagana 16. og 17. september sl..

TechBBQ ráðstefnan er vettvangur fyrir frumkvöðla til þess að setja sig í samband við alþjóðlega fjárfesta, aðra fjársterka aðila og fjölmiðla. Ráðstefnan hefur verið haldin reglulega frá árinu 2015, en í fyrra var hún í ljósi Covid-19 haldin rafrænt.
Meginmarkmið ráðstefnunnar er að tengja saman sprotafyrirtæki og fjárfesta með það að leiðarljósi að aðstoða næstu kynslóð af efnilegum sprotafyrirtækjum við að komast á laggirnar og vaxa á heimsmælikvarða.

Samhliða ráðstefnunni bauð Helga Hauksdóttir, sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, til móttöku þar sem sprotafyrirtækjunum gafst tækifæri til tengslamyndunar. Helga Valfells stofnandi og framkvæmdastjóri Crowberry Captial var heiðursgestur móttökunnar, en hún hafði vikuna áður, ásamt samstofnendum sínum tilkynnt um nýjan sjóð Crowberry með 90 milljón USD stofnfjárframlagi auk 40 milljón USD framlagi sem væntanlegt er á næsta ári. Er sá sjóður þar með orðinn sá stærsti sinnar tegundar á Íslandi og kominn í hóp þeirra stærstu á Norðurlöndunum.


Norræna sprotasamfélagið hefur vaxið mikið undanfarin ár og er talið vera á heimsmælikvarða. Samstaða Norðurlandanna hefur átt stóran þátt í þessum vexti en samstarf milli Íslands og hinna Norðurlandanna hefur aukist til muna á síðustu árum. Ráðstefna sem þessi er stökkpallur fyrir íslensk fyrirtæki sem ætla sér á alþjóðamarkað, en ekki síður góð landkynning á hinni frjóu frumkvöðlastarfsemi sem hér er að finna

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics