Hoppa yfir valmynd

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar erlendis vegna forsetakosninga má hefjast 30. apríl nk.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna forsetakosninga 25. júní 2016 má hefjast 30. apríl og fer fram í öllum sendiráðum Íslands erlendis, aðalræðisskrifstofum Íslands í New York, Winnipeg, Nuuk og Þórshöfn í Færeyjum. Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar eftir samkomulagi hjá kjörræðismönnum Íslands erlendis, samanber meðfylgjandi lista.

Þeim sem hyggjast kjósa á ræðisskrifstofum er vinsamlegast bent á að hafa samband við ræðismenn áður en þeir koma til að kjósa. Gert er ráð fyrir að kjósendur kynni sér sjálfir hverjir eru í framboði. Hagnýtar upplýsingar um kosningarnar verður að finna á vefnum www.kosning.is.

Athygli kjósenda er ennfremur vakin á því, að þeim ber sjálfum að póstleggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi.

Listi yfir hvar er hægt að kjósa erlendis

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics