Hoppa yfir valmynd

Samningaviðræðum um fríverslunarsamning milli EFTA-ríkjanna og Persaflóaríkja lokið

Samningaviðræðum um fríverslunarsamning milli EFTA-ríkjanna og Samstarfsráðs Persaflóaríkja (Barein, Katar, Kúveit, Óman, Sádi-Arabía og Sameinuðu arabísku furstadæmin) lauk í Genf aðfararnótt sumardagsins fyrsta, 24. apríl 2008. Samningaviðræður stóðu yfir í tæplega tvö ár.

Samningurinn gerir ráð fyrir að tollar á sjávarafurðum og öllum helstu iðnaðarvörum frá Íslandi falli niður frá gildistöku samningsins. Tollar á lýsi munu þó falla niður að loknum fimm ára aðlögunartíma.

Með tvíhliða samningi hvers EFTA-ríkis fyrir sig við Persaflóaríkin eru tollar á tilteknum óunnum landbúnaðarvörum lækkaðir eða felldir niður. Innflutningur á íslensku lambakjöti til ríkjanna verður t.d. tollfrjáls frá gildistöku samningsins. Jafnframt munu samningsaðilar lækka eða fella niður tolla af ýmsum unnum landbúnaðarvörum.

Fríverslunarsamningurinn gerir ráð fyrir auknu frjálsræði í þjónustuviðskiptum. Samningurinn nær jafnframt til opinberra innkaupa og verndunar hugverkaréttinda. Til viðbótar munu ríkin semja síðar um leiðir til að stuðla að auknum fjárfestingum.

Samningurinn verður undirritaður við fyrsta tækifæri. Að lokinni undirritun þarf að fullgilda hann í einstökum EFTA-ríkjum og Persaflóaríkjum svo hann öðlist gildi.



Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics