Hoppa yfir valmynd

Norrænir fjármálaráðherrar funduðu í Washington

Frá fundi norrænna fjármálaráðherra.  - mynd

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, stýrði fundi norrænu fjármálaráðherranna í Washington í morgun, sem fram fór samhliða ársfundum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans sem ráðherrarnir sækja einnig. Fundinn sóttu ráðherrar Danmerkur, Finnlands, Færeyja, Grænlands, og Noregs auk staðgengils fjármálaráðherra Svíþjóðar.

Loftslagsmál voru áberandi í dagskrá fundarins, þar á meðal hvernig fylgja ætti eftir sameiginlegri yfirlýsingu forsætisráðherra Norðurlandanna frá því í ágúst, um grænni, samkeppnishæfari og félagslega sjálfbær Norðurlönd. Einnig var starf alþjóðlegs vettvangs fjármálaráðherra um loftslagsmál, CAPE, til umræðu, sem Ísland, Finnland, Svíþjóð, Noregur og Danmörk eiga aðild að. Ráðherrarnir voru sammála um mikilvægi þess að Norðurlöndin væru leiðandi í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Ritið Nordic Economic Policy Review, Climate Policies in the Nordic Countries – a cost benefit approach, sem gefið var út í maí 2019, var lagt til grundvallar í umræðum um það hvernig norrænu ríkin gætu best orðið að liði í alþjóðlegri stefnumörkun og aðgerðum. Ályktaði fundurinn að þar gegndi tækniþróun lykilhlutverki, en einnig var rætt um möguleika á að flytja út hugmyndir að loftslagsvænum hvötum, t.d. gegnum skattkerfið.

Aðlögun innflytjenda að norrænum vinnumarkaði var einnig á dagskrá fundarins, en fjármálaráðherrarnir samþykktu árið 2017 að fjármagna verkefni á vegum norrænu ráðherranefndarinnar undir heitinu Integrating immigrants into the Nordic labor markets. Voru niðurstöður verkefnisins kynntar sl. vor. Fram kom á fundinum að þau ríki sem hafa tekið á móti flestum flóttamönnum síðustu árin vilja vinna gegn hættu á félagslegri einangrun þeirra. Þau leggja því mikla áherslu á að innflytjendur fái tækifæri til að aðlagast á nýjum stað til að geta tekið virkan þátt í vinnumarkaði og samfélagi.

Ráðherrarnir ræddu útgöngu Breta úr ESB og áhrif á norrænu ríkin, sérstaklega hvað varðar viðskiptahagsmuni. Einnig voru varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka til umfjöllunar og gerði Bjarni Benediktsson grein fyrir tíðindum morgunsins, um að alþjóðlegur starfshópur um varnir gegn peningaþvætti hefði sett Ísland á lista yfir ríki með ófullnægjandi varnir en aðgerðaáætlun í farvegi. Fulltrúar Svíþjóðar, Noregs, Danmerkur og Finnlands lýstu þeirri skoðun sinni að sú niðurstaða væri óverðskulduð.


Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics