Hoppa yfir valmynd

Starfslok forstjóra Ratsjárstofnunar

FRÉTTATILKYNNING

frá utanríkisráðuneytinu

Nr. 115/2007

Í tilefni af frétt Fréttablaðsins í dag vill utanríkisráðuneytið upplýsa að Ólafur Örn Haraldsson hefur fyrir nokkrum dögum síðan látið af störfum sem forstjóri Ratsjárstofnunar í góðu samkomulagi við utanríkisráðuneytið. Fyrirsögn Fréttablaðsins á því ekki við rök að styðjast.

Í framhaldi af fullri yfirtöku íslenskra stjórnvalda á fjármögnun, rekstri og verkefnum Ratsjárstofnunar 15. ágúst sl. hefur sérstökum starfshópi verið falið að meta hvernig verkefnum stofnunarinnar og öðrum tengdum verkefnum verði best fyrir komið til framtíðar. Ljóst er að nauðsynlegt er að skjóta nýjum stoðum undir málefnasviðið með lagasetningu og að stefnt er að því að stofnunin taki til starfa á grunni nýrrar löggjafar á næsta ári. Öllum samningum Ratsjárstofnunar, hvort heldur við byrgja eða starfsfólk hefur verið sagt upp, og á það einnig við um ráðningarsamning forstjóra. Rétt er þó að taka fram að vonast er til að sem flestir starfsmanna muni starfa áfram á málefnasviðinu í framtíðinni.

Ólafur Örn kom að starfi forstjóra Ratsjárstofnunar á miklum umbreytingartíma þegar verið var aðlaga stofnunina að breyttum rekstarforsendum Bandaríkjamanna. Hann skilaði þeirri umbreytingu af sér með miklum sóma og náði verulegri hagræðingu í rekstrinum.

Utanríkisráðuneytið og Ólafur Örn eru sammála um að nú þegar ljóst er að aftur verði ráðist í verulega umbreytingu á rekstrinum sé heppilegast að gefa svigrúm fyrir að nýir aðilar komi að málum. Því hefur orðið samkomulag um að hann vinni ekki út uppsagnarfrest sinn hjá stofnuninni. Ólafi Erni eru þökkuð vel unnin störf í þágu Ratsjárstofnunar og utanríkisráðuneytið væntir góðs samstarfs við hann og ráðgjafar frá honum um fyrirsjáanlega endurskipulagningu á málefnasviðinu.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics