Hoppa yfir valmynd

Styrkir til rannsókna- og þróunarverkefna búgreina


Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna- og þróunarverkefna í garðyrkju, samkvæmt VIII. kafla reglugerðar nr. 1273/2020 um stuðning við garðyrkju, þróunarverkefna í sauðfjár- og nautgriparækt, samkvæmt VIII. kafla reglugerðar um almennan stuðning í landbúnaði. Athygli er vakin á að umsýsla með styrkjunum fluttist um sl. áramót frá Framleiðnisjóði landbúnaðarins til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.

Fjármunum til þróunarverkefna er ætlað að styðja við kennslu, rannsóknir, leiðbeiningar og þróun í greinunum svo sem ráðgjafar-, kynningar-, rannsókna- eða tilraunaverkefni sem og, vöruþróunar- og endurmenntunarverkefni.  Fagráð hverrar búgreinar veitir umsögn um allar umsóknir sem berast í þróunarsjóð hennar.

Umsókn skal skila rafrænt á mínum síðum (eyðublaðavef)  Stjórnarráðsins
Sérstök umsókn er fyrir hverja búgrein þ.e. garðyrkju, nautgriparækt og sauðfjárrækt og umsækjendur eru beðnir að gæta að því.

Umsóknarfrestur er til og með 3. maí 2021.

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk skrifstofu landbúnaðarmála í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Senda má fyrirspurnin á tölvupóstfang [email protected]
 

Tags

17. Samvinna um markmiðin

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics