Hoppa yfir valmynd

Umhverfisráðherra situr fund EES ráðsins

Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra sat 30. fund EES-ráðsins sem fór fram í Brussel í dag, 13. nóvember. Í EES-ráðinu sitja utanríkisráðherrar aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins ásamt fulltrúum framkvæmdastjórnar ESB. Rita Kieber-Beck, utanríkisráðherra Liechtenstein, stýrði fundinum en Liechtenstein er í formennsku EES-ráðsins. Jean-Pierre Jouyet Evrópumálaráðherra var fulltrúi formennskuríkis ráðs ESB, en Frakkland sinnir nú formennsku. Jonas Gahr Støre, utanríksráðherra Noregs sótti fundinn fyrir hönd Noregs.

Ráðherrarnir ræddu framkvæmd EES-samningsins og það sem framundan er í samstarfinu. Þar má nefna viðræður um frekari framlög í þróunarsjóð EFTA, þátttöku í samstarfsáætlunum og stofnunum Evrópusambandsins auk orku- og loftslagsstefnu Evrópusambandsins sem skipar veigamikinn sess í starfsemi þess nú um stundir. Einnig var rætt um málefni norðurslóða en Evrópusambandið vinnur nú að stefnu sinni á því sviði. Gerði umhverfisráðherra ítarlega grein fyrir helstu áherslum Íslands í málefnum tengdum norðurslóðum.

Í tengslum við fund EES-ráðsins var að venju skipst á skoðunum um pólitísk málefni. Að þessu sinni var til umræðu Rússland og ástand mála í Afganistan og Zimbabwe.

Fyrir fundinn átti umhverfisráðherra sérstakan fund með Jean-Pierre Jouyet, þar sem ráðherra gerði stutta grein fyrir stöðu mála á Íslandi og þeim efnahagsvanda sem að steðjar. Frakkar hafa, í krafti formennsku sinnar í ráði ESB, tekið að sér og átt frumkvæði að því miðla málum vegna innistæðureikninga í Hollandi og Bretlandi.



Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics