Hoppa yfir valmynd

Nr. 85, 2. október 1998:Minnisvarði við minjasafnið að Hnjóti í Örlygshöfn.

Ríkisstjórn Íslands ákvað að tillögu Halldórs Ásgrímssonar, utanríkisráðherra, þann 24. apríl sl. að láta smíða og reisa minnisvarða við minjasafnið að Hnjóti í Örlygshöfn til að minnast afreka íslenskra björgunarmanna við björgun innlendra og erlendra sjómanna úr sjávarháska og til minningar um þá sem ekki varð bjargað.
Minnisvarðinn verður afhjúpaður af Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra þann 3. október nk. kl. 13:30.
Hönnuður minnisvarðans er Bjarni Jónsson. Hann var smíðaður í Vélsmiðjunni Orra í Mosfellsbæ og smiður hans var Ólafur Þorvarðarson.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 2. október 1998.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics