Hoppa yfir valmynd

Forsætisráðherra fundaði með varaforseta Bandaríkjanna

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundar með Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna - myndSigurjón Ragnar

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði með Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, í kvöld. Fundurinn fór fram í húsnæði Landhelgisgæslunnar á Suðurnesjum skömmu eftir að forsætisráðherra kom til landsins frá Svíþjóð og Danmörku.

Á fundinum var rætt um tvíhliða samstarf ríkjanna, öryggis- og varnarmál og viðskipta- og efnahagsmál. Forsætisráðherra ræddi einnig sérstaklega um málefni Norðurslóða, umhverfismál og jafnréttismál.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra:

„Ég ræddi loftslagsvána sérstaklega á fundi okkar, ekki síst á Norðurslóðum. Ég lagði áherslu á samvinnu innan Norðurskautsráðsins og annarra alþjóðlegra stofnana og mikilvægi þess að grípa til aðgerða gegn loftslagsbreytingum. Ég benti á að loftslagsmál og mannréttindamál eru hvort tveggja lykilmálefni fyrir ríkisstjórn Íslands, og ræddi sérstaklega kynjajafnrétti í því samhengi.

Við ræddum um öryggis- og varnarmál og þá uppbyggingu sem nú stendur yfir á öryggissvæði Landhelgisgæslunnar á Suðurnesjum. Ég fór yfir þjóðaröryggisstefnu Íslands og gerði grein fyrir því að ef til frekari uppbyggingar kæmi þyrftu slík áform að hljóta lýðræðislega og gagnsæja umræðu á Íslandi. Þá áréttaði ég þá stefnu Íslands að sporna gegn vígvæðingu á Norðurslóðum.“

  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 1

Tags

16. Friður og réttlæti
13. Aðgerðir í loftslagsmálum
5. Jafnrétti kynjanna

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti

13. Aðgerðir í loftslagsmálum

5. Jafnrétti kynjanna

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics