Hoppa yfir valmynd

Hreinsunarátak á strandlengjum Líberíu með stuðningi Íslands

Ein af strandlengjunum eftir hreinsunarátakið.  - mynd

Strandlengjur við fiskisamfélög í Líberíu hafa verið hreinsaðar á síðustu misserum í verkefni á vegum Fiski- og fiskeldisstofu Líberíu með fjárhagslegum stuðningi utanríkisráðuneytisins. Um er ræða tilraunaverkefni í fjórum fiskisamfélögum með samtals ríflega þrjátíu þúsund íbúa. Verkefnið fellur að fjórtánda heimsmarkmiðinu sem felur í sér að vernda og nýta hafið og auðlindir þess á sjálfbæran hátt í því skyni að stuðla að sjálfbærri þróun.

„Íslendingar fjármögnuðu á sínum tíma hluta af verkefni Alþjóðabankans í fiskimálum í Vestur-Afríku en eftir að því verkefni var hætt hefur utanríkisráðuneytið stutt sérstaklega við verkefni í Líberíu um sjálfbærni í fiskimálum. Markmið þess er að styrkja sjálfbæra nýtingu og stjórnun fiskveiðiauðlindarinnar í Líberíu, vernda umhverfi hafsins og bæta lífsviðurværi í fiskisamfélögum með áherslu á baráttuna gegn fátækt,“ segir Árni Helgason á alþjóða- og þróunarsamvinnuskrifstofu ráðuneytisins.

Verkefnin sem Ísland styður snúa meðal annars að því að bæta aðgengi íbúanna að vatni, salernis- og hreinlætisaðstöðu og betrumbæta meðferð og vinnslu aflans.

Nýlokið er sérstöku hreinsunarátaki við strandlengjur fiskisamfélaganna. Um 25-30 einstaklingar í hverju samfélagi voru fengnir til þess að hreinsa strendurnar. „Fólkið fékk nauðsynlegan búnað til þess að vinna verkið við öruggar aðstæður og byggður var sérstakur brennsluofn til þess að brenna úrganginn. Það er ljóst að slík lausn er ekki til frambúðar og því þarf að finna leiðir til að endurvinna úrganginn í stað þess að brenna hann. Losun utanaðkomandi úrgangs við strendurnar er annar vandi sem bíður úrlausnar, svo og fjárhagsleg sjálfbærni verkefnisins,“ segir Árni.

Nú blasa hins vegar við hreinar og fallegar strendur sem áður voru þaktar plasti og rusli í bland við þang og önnur lífræn efni.

  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 1
    Fyrir og eftir hreinsunarátak.
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 2
    Tveir af fjórum hópum sem tóku þátt í hreinsun strandlengjunnar.

Tags

14. Líf í vatni
17. Samvinna um markmiðin
6. Hreint vatn og hreint

Heimsmarkmiðin

14. Líf í vatni

17. Samvinna um markmiðin

6. Hreint vatn og hreint

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics