Hoppa yfir valmynd

Nr. 083, 4. október 1999. Undirritun tvísköttunarsamngins við Lúxemborg.

FRÉTTATILKYNNING

frá utanríkisráðuneytinu

________




Nr. 083


Í dag undirrituðu Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra Íslands í Brussel, og Lydie Polfer, utanríkisráðherra Lúxemborgar, í Lúxemborg tvísköttunarsamning milli landanna. Samningurinn kveður á um skiptingu skattlagningar á tekjur og eignir milli ríkjanna og aðferðir til að koma í veg fyrir tvísköttun. Með samningnum er enn fremur leitast við að koma í veg fyrir undanskot frá skattlagningu á tekjur og eignir.


Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 4. október 1999.


Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics