Hoppa yfir valmynd

Utanríkisráðherra væntanleg heim í vikulok

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hefur dvalist á Karolínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi síðastliðna viku. Þar gekkst hún undir aðgerð þar sem sýni voru tekin vegna heilaæxlis og hluti þess jafnframt fjarlægður. Aðgerðin heppnaðist vel en ákvörðun um frekari meðferð liggur ekki fyrir. Ingibjörg Sólrún er væntanleg heim í vikulokin og mun þá verða lögð inná Landspítala háskólasjúkrahús þar sem læknar munu taka ákvörðun um framhaldið.

Össur Skarphéðinsson er starfandi utanríkisráðherra í fjarveru Ingibjargar Sólrúnar.

 



Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics