Hoppa yfir valmynd

Fulltrúar níu eyríkja í Kyrrahafi kynna sér íslenskan sjávarútveg

Hópurinn fyrir utan Hafró við Hafnarfjarðarhöfn í gær. - mynd

Fulltrúar níu eyríkja í Kyrrahafi eru staddir hér á landi í þeim tilgangi að fá innsýn í árangur Íslands við uppbyggingu á sjálfbærum sjávarútvegi. Ferðinni, sem Alþjóðabankinn hefur milligöngu um í samstarfi við utanríkisráðuneytið og Sjávarútvegsskóla GRÓ, er ætlað að gefa sérfræðingum í sjávarútvegi á Kyrrahafseyjum tækifæri til að læra af þjóð sem er „leiðandi á heimsvísu í sjálfbærum fiskveiðum“, eins og segir í frétt Alþjóðabankans.

Í hópnum eru sérfræðingar, leiðtogar og höfðingjar frá Kíribatí, Marshalleyjum, Palá, Samóaeyjum, Salómonseyjum, Tonga, Túvalú og Vanúatú. Þeir kynna sér á næstu tíu dögum nútímalegan sjálfbæran sjávarútveg á Íslandi, tækni og þróun blómlegs einkageira, sem sögð er hvetjandi fyrirmynd fyrir Kyrrahafseyjar.

Xavier Vincent, helsti fiskveiðisérfræðingur Alþjóðabankans í Kyrrahafi, bendir í fréttatilkynningu bankans á möguleika Kyrrahafseyríkja til að efla sjávarútveg enn frekar, sérstaklega með vinnslu á landi og nýtingu jarðhitaauðlinda. Heimsóknin gefi fyrirheit um að þessi tækifæri verði nýtt og að Kyrrahafsþjóðirnar geti náð meiri verðmætum úr fiskveiðum sínum, líkt og Ísland.

Sjávarútvegsskóli GRÓ skipuleggur dagskrá heimsóknarinnar, meðal annars í samvinnu við Háskólann á Akureyri.  Auk þess að heimsækja íslenskar stofnanir og ráðuneyti fara gestirnir í nokkur íslensk fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu, Grindavík, Akureyri, Dalvík, Hvammstanga, Hauganesi og Siglufirði, allt frá litlum fjölskyldumfyrirtækjum til tækni- og nýsköpunarfyrirtækja.

  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 1

Tags

14. Líf í vatni

Heimsmarkmiðin

14. Líf í vatni

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics