Hoppa yfir valmynd

Forsætisráðherra á afmælisfundi EES-samningsins í Brussel

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, á afmælisfundi EES-samningsins í Brussel - mynd

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, átti fund með leiðtogaráði Evrópusambandsins ásamt forsætisráðherrum Noregs og Liechtensteins í Brussel í morgun í tilefni 25 ára afmælis EES-samningsins.

Fyrir fundinn átti forsætisráðherra morgunverðarfund með forsætisráðherrum Liechtensteins og Noregs áður en haldið var á leiðtogafundinn. Að loknum leiðtogafundinum fluttu forsætisráðherrarnir stutt ávörp og veittu fjölmiðlum viðtöl.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra:

„Heil kynslóð Íslendinga gengur út frá því að hægt sé að vinna, ferðast, búa og læra hvar sem er á evrópska efnahagssvæðinu ólíkt því sem áður var – það þarf ekki að nefna hversu miklu þetta skiptir litla eyþjóð eins og okkur og hversu mikilvægur samningurinn hefur reynst íslensku atvinnulífi. Það er mjög ánægjulegt að fá að fagna afmæli samningsins með leiðtogum ríkja ESB. EES-samningurinn veitir okkur enn fremur tækifæri að eiga samtal um mikilvæg alþjóðamál svo sem loftslags- og mannréttindamál, sem er ekki vanþörf á í ljósi þróunar heimsmála.“

Forsætisráðherrar EES-EFTA ríkjanna samþykktu sameiginlega yfirlýsingu þar sem áframhaldandi mikilvægi samningsins var undirstrikað.

 

 

Yfirlýsing forsætisráðherra EES-EFTA ríkjanna í tilefni 25 ára afmæli EES-samningsins
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 1
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 2

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics