Hoppa yfir valmynd

Lengd fæðingarorlofs

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra sagði í svari við fyrirspurn Björns Inga Hrafnssonar á Alþingi að til greina kæmi að lengja fæðingarorlof foreldra úr 9 í 12 mánuði í framtíðinni en hafa þyrfti hliðsjón af öðrum brýnum velferðarmálum. Útgjöld Fæðingarorlofssjóðs ykjust um 2 milljarða króna við slíka breytingu. Unnið væri að rannsóknum á ýmsum þáttum varðandi nýtingu fæðingarorlofsins og stefnt væri að því að styrkja en ekki veikja stöðu kvenna á vinnumarkaði.

Svar félagsmálaráðherra við fyrirspurn (323. mál — þskj. 346)



Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics