Hoppa yfir valmynd

Utanríkisráðherra fundar með forseta króatíska þingsins

OS-og-Luka-Bebic
OS-og-Luka-Bebic

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hitti í dag Luka Bebic, forseta króatíska þingsins sem er staddur hér í opinberri heimsókn ásamt sendinefnd frá króatíska þinginu. Á fundi sínum ræddu þeir reynslu ríkjanna af aðildarumsóknum að Evrópusambandinu en formlegum aðildarviðræðum Króata og ESB lauk nú í sumar, smáríki í alþjóðlegu samstarfi og tvíhliða samskipti Íslands og Króatíu, m.a. varðandi jarðhita og ferðamál.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics