Hoppa yfir valmynd

Undirritun tvísköttunarsamnings við Austurríki

Auðunn Atlason sendiherra og Michael Linhart, ráðuneytisstjóri austurríska utanríkisráðuneytisins undirrita. - mynd

Undirritaður hefur verið samningur milli Íslands og Austurríkis til að koma í veg fyrir tvísköttun og nær samningurinn til tekju- og eignaskatta. Undirritunin fór fram í Vín í Austurríki og undirritaði Auðunn Atlason sendiherra samninginn fyrir hönd Íslands en Michael Linhart, ráðuneytisstjóri í austurríska utanríkisráðuneytinu fyrir hönd Austurríkis.

Helstu efnisatriði samningsins eru þau að samið var um 5% afdráttarskatt af arði ef félagið sem móttekur arðinn á a.m.k. 10% í félaginu sem greiðir arðinn. Að öðrum kosti er afdráttarskattur af arði 15%. Enginn afdráttarskattur er af vöxtum en 5% afdráttarskattur er af þóknunum. Samkvæmt samningnum er frádráttaraðferð beitt í því skyni að koma í veg fyrir tvísköttun og jafnframt er að finna ákvæði um aðstoð við innheimtu skatta.

Á næstu mánuðum munu stjórnvöld vinna að fullgildingu samningsins í báðum samningsríkjum.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics