Hoppa yfir valmynd

Nr. 003, 19. janúar 1998: Heimsókn utanríkisráðherra Kanada.

FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
_____________

Nr. 003
Lloyd Axworthy, utanríkisráðherra Kanada kemur í stutta heimsókn til Íslands þriðjudaginn 20. þ.m. á leið sinni til Kanada. Að kvöldi þess dags situr hann kvöldverðarboð utanríkisráðherra. Á miðvikudag mun hann eiga viðræður við utanríkisráðherra og fara í kurteisisheimsókn til forseta Íslands. Þá mun hann einnig eiga fund með forsætisráðherra og síðan utanríkismálanefnd Alþingis, áður en hann heldur af landi brott.


Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 19. janúar 1998

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics