Hoppa yfir valmynd

Samkeppni um nafn á nýja þjónustustofnun

Sameining
Sameining

Hafin er samkeppni um nafn á nýja þjónustustofnun fyrir fatlað fólk sem verður til samkvæmt frumvarpi Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, um sameiningu Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins, Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands og Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga. Frestur til að senda inn tillögur um nafn rennur út 1. október.

Auk stofnananna þriggja er miðað við að Tölvumiðstöðin sem Öryrkjabandalagið hefur rekið með styrk frá ríkinu verði einnig hluti af hinni nýju stofnun. Frumvarp um nýja sameinaða stofnun verður lagt fram á Alþingi í haust.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics