Hoppa yfir valmynd

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-september 2014

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu þrjá ársfjórðunga ársins 2014 liggur nú fyrir en í aðalatriðum gefur það upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á grundvelli innheimtra tekna og greiddra gjalda. Nokkur munur er á greiðsluuppgjöri annars vegar og uppgjöri á rekstrargrunni eins og ríkisreikningur er gerður eftir hins vegar. Hann felst einkum í því að í greiðsluuppgjöri er ekki tekið tillit til ýmissa fjárskuldbindinga og krafna sem áfallnar eru á árinu bæði á tekju- og gjaldahlið sem hafa ekki haft áhrif á greiðslur úr ríkissjóði.


Handbært fé frá rekstri var jákvætt um 17,7 ma.kr. en var neikvætt um 22 ma.kr. á sama tímabili árið 2013. Innheimtar tekjur hækkuðu um 60,6 ma.kr. milli ára en greidd gjöld jukust um 21,6 ma.kr.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics