Hoppa yfir valmynd

Vel heppnað heilbrigðisþing að baki

Göran Hermerén - myndHeilbrigðisráðuneyti - /ME

Fjölmennt var á heilbrigðisþingi um siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu síðastliðinn föstudag og margir fylgdust með þinginu í beinni útsendingu á vefnum. Hægt er að nálgast upptöku af þinginu í heild, glærur fyrirlesara hafa verið gerðar aðgengilegar og sömuleiðis fjöldi ljósmynda sem teknar voru af fyrirlesurum og gestum þingsins meðan á því stóð.

Á fjórða hundrað manns skráðu sig á þingið og komust færri að en vildu. Markmiðið með þinginu var að skapa vettvang fyrir kynningu og umræður um helstu gildi og siðferðilegar áherslur sem leggja beri til grundvallar við forgangsröðun heilbrigðiskerfinu. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir afar mikilvægt að um þessi mál ríki almenn sátt í samfélaginu og að fólk sé meðvitað og upplýst um hvað forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu felur í sér og hvers vegna forgangsröðun sé óhjákvæmileg.

Ráðherra segir þingið hafa tekist vel og að vönduð og fjölbreytt erindi fyrirlesara á þinginu hafi varpað skýru ljósi á viðfangsefnið og ólíkar hliðar þess. Eins hafi verið afar gagnlegt að sjá hvaða spurningar brunnu helst á þeim sem fylgdust með þinginu og sjá þar ákveðinn samhljóm þar sem m.a. áhersla á jafnræði, mannhelgi og virðingu vegur þungt. „Ég er afar þakklát öllum þeim sem tóku þátt í þinginu eða komu að undirbúningi þess eða skipulagningu á einhvern hátt. Það tókst afar vel til og nú liggur fyrir mikið efni og góður grunnur að byggja á við mótun tillögu til þingsályktunar um þetta vandasama viðfangsefni.“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

Heilbrigðisráðherra stóð einnig fyrir heilbrigðisþingi í nóvember í fyrra þar sem fjallað var um drög að nýrri heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Eftir frekari úrvinnslu voru stefnudrögin birt til umsagnar og í júní 2019 varð heilbrigðisstefna að veruleika með þingsályktun sem samþykkt var á Alþingi í júní 2019. Forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu eru meðal umfjöllunarefna heilbrigðisstefnunnar þar sem sett er fram það stefnumið að: „Almenn sátt ríki um þær siðferðilegu meginreglur sem liggi til grundvallar forgangs­röðun og ákvörðunum í heilbrigðiskerfinu og stöðug umræða verði um siðferðileg leiðarljós.

Hér að neðan eru myndir frá þinginu
© Heilbrigðisráðuneytið -/ME 

  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 1
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 2
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 3
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 4
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 5
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 6
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 7
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 8
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 9
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 10
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 11
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 12
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 13
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 14
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 15
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 16
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 17
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 18
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 19
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 20
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 21
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 22
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 23
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 24
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 25
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 26
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 27
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 28
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 29
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 30
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 31
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 32
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 33
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 34
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 35
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 36
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 37
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 38
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 39
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 40

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics